Grunnnámskeið – undirbúningur fyrir andlega vinnu með Ómari Péturssyni 11-12. mars

Laugardagur og Sunnudagur 11-12.Mars  – Námskeið

Grunnnámskeið – undirbúningur fyrir andlega vinnu

með Ómari Péturssyni

Námskeiðið er hugsað bæði fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir. Hámark 10 þáttakendur.

Laugardagur 10-16

Jarðtenging.  Farið yfir hvers vegna jarðtenging er okkur svo mikilvæg, bæði í okkar daglega lífi og sem grunnur að allri andlegri vinnu. Æfingar og leiðbeiningar til þess að styrkja jarðtenginguna og fá tilfinningu fyrir því hvernig hún er (sterk/veik) og vinna með það. Einnig farið yfir það hvað er andlega vinna, hvað langar fólk til þess að gera og mikilvægi þess að hugsa vel um ýmsa þætti t.d. vatnsdrykkju þegar verið er að vinna.

Vernd.  Hvað getum við gert til þess að passa uppá okkar andlegu orku, halda henni fyrir okkur og stjórna því hvernig flæði hennar er. Hvernig finnum við hvort að við erum með þetta í lagi ? Æfingar til þess að læra að sjórna þessum þætti, ekki síst í okkar daglega lífi, þar sem orkan er oft tekin frá okkur án okkar vitundar, sérstaklega í fjölmenni.

Sunnudagur 10-16

Heilun. Hvað er heilun, hvernig get ég notað heilun fyrir sjálfan mig og lögð áhersla á að fyrst hugsar maður um sjálfan sig, áður en hægt er að vinna með aðra. Æfingar í næmni, finna fyrir orkunni og átta sig á hvað um er að vera. Æfingar í heilun og fjarheilun.

Allt námskeiðið kostar 25 þúsund og innifalin er hádegishressing og kaffi.

Ómar Pétursson, miðill.

Fæddur og uppalinn á Bakkafirði, lengi búsettur á Dalvík, en er núna á Akureyri.

Hef frá því ég man eftir mér séð ýmsar verur álfa, huldufólk og framliðna.

Síðustu 15 ár hef ég starfað mest við heilun, en einnig miðlun.

Hef farið á fjölda námskeiða innanlands, en einnig hef ég þrisvar farið á námskeið til Bretlands, síðast um mánaðarmótin ágúst-september 2018.Setti upp síðuna “Tveggja heima tal” á Facebook fyrir 3 árum, það sem hægt er að setja fram spurningar og fylgjast með umræðum um andleg mál.