Transheilunarnámskeið með Ásthildi Sumarliða helgina 11.-12.október

Ásthildur Sumarliðadóttir mun halda námskeið fyrir þá sem vilja læra að vinna með transheilun og
fjarheilun helgina 11.-12. október frá 10:00-16:00.

Byrjað verður báða dagana á hugleiðslu sem mun efla þitt jarðsamband, samstarf við þína verndara og leiðbeinendur er koma að þinniandlegu vinnu og heilunarstarfi.

Námskeiðið felst í fræðslu, leiðsögn og æfingum tengdum transheilun og fjarheilun.

Ásthildur hefur alltaf verið næm og hún telur að lífið sjálft hafi á margan hátt stuðlað að þróun miðilshæfileika hennar. Lífsreynslan, tengsl við fólk, námskeið og margvíslegar upplifanir hafa fleytt henni áfram í andlegum þroska.
Ásthildur hefur verið að þjálfa sig sem transmiðil og vinnur með transheilun.Hún hefur sótt nokkur námskeið hjá líkamsmiðlinum Scott Milligan.
Ásthildur er sambands spámiðill, OPJ meðferðaraðili, reikimeistari og vinnur með Transheilun.
Ásthildur hefur haldið námskeiðin: Þjálfun miðilshæfileikans, Transheilunarnámsskeið og Spáð í spilin – þau gömlu góðu.
Ásthildur hefur haldið skyggnilýsingar hjá félaginu og einnig staðið fyrir heilunarhugleiðslustund til styrktar félaginu.
Markmið Ásthildar er að vinna af heiðarleika og að nýta vettvang alkærleikans fyrir sína vinnu.

Ásthildur hefur haldið nokkur námskeið í þjálfun miðilshæfileikans,transheilunarnámskeið, spilanámskeiðið með gömlu og góðu spilunum auk þessheldur hún utan um Þróunarhópa hjá félaginu.

Námskeiðið er frá 10:00-16:00. Báða daganna. Klukkustund í matarhlé.

Verð: 30.000 kr

Skráning á námskeiðið er hér https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.

Við erum í Skipholti 50d.