Spáðu í spilin með Ásthildi Sumarliða

Spáðu í spilin – þau gömlu góðu verður helgina 20.-21.maí frá kl. 10:00 – 16:00

Á þessu helgarnámskeiði mun Ásthildur kenna þátttakendum hvaða merkingu spilin hafa, ásamt lögnum, fræðslu og æfingum.
Kennt er að lesa í þessi gömlu góðu í 52 spila stokknum og þeir sem ná góðum tökum á þessari aðferð geta lesið í fortíðina, núverandi aðstæður og framtíðina, fyrir þann sem lagt er fyrir hverju sinni.
Báðir dagarnir byrja á leiddri hugleiðslu, hún stuðlar að betri tengingu við spilin og eflir næmni.
Ásthildur mun segja frá merkingu spilanna, kenna lagnir og stýra æfingum.
Allir nemendur á námsskeiðinu fá gögn um merkingu spilanna og hvernig þau eru lögð.
Ásthildur hefur verið næm frá barnæsku og hún byrjaði að lesa í venjulegu spilin á unglingsaldri. Hún hefur verið í transmiðilsþjálfun frá árinu 2007
Ásthildur er Opj. þerapisti, Reikimeistari og hefur farið á nokkur námskeið í Arthur Findlay College tengt miðlun, transmiðlun og transheilun.
Ásthildur hefur haldið ýmis námsskeið hérlendis og erlendis, tengt miðlun og heilun og verið með vökumiðlun.
Einnig hefur hún verið með tilraunakvöld í tengslum við andleg málefni, sem hafa verið byggð upp á fræðslu og æfingum.
Skráning fer frám á srfi.is, srfi@srfi.is, hjá Ásthildi asasumarlida16@gmail.com eða í sima 551-8130
Verð: 20.000