Transnámskeið með Paloma Zendings 10.-11.október

Vertu með á spennandi helgarnámskeiði þar sem við könnum heillandi heim transmiðlunar

Á námskeiðinu lærir þú að dýpka tengslin við andlega leiðbeinendur þína gegnum hugleiðslur, heilun og miðlun.

Á námskeiðinu munum við vinna með:

✨ Að sitja í orkunni – djúpar hugleiðslur sem styrkja tengsl þín við leiðbeinendur ‏þ‏ína og ‎dýpka meðvitund þína.

✨ Transheilun – æfingar til að upplifa og miðla heilandi orku gegnum transvinnu.

✨ Transmiðlun með leiðbeinendum – leyfðu leiðbeinendum þínum að miðla visku, innsýn, innblæstri og leiðsögn í gegnum þig.

✨ Trans miðlun með ástvinum – lærðu hvernig ástvinir í andaheiminum geta tjáð sig í gegnum trans og skapað dýpri og skýrari tengingu.

Trans er djúpt hugleiðsluástand sem byggir brú milli efnisheimsins og andaheimsins. Þegar þú lærir að stíga til hliðar getur andaheimurinn tjáð sig með beinum hætti og skapað dýpri upplifun heilunar, innblásturs og tengingu.

Hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin inn í heim trans eða vilt dýpka núverandi iðkun þína, mun þessi helgi veita þér verðmæt verkfæri, reynslu og innsýn sem styðja við andlega vegferð þína.

Engin fyrri reynsla er nauðsynleg – aðeins opinn hugur og vilji til að læra og þroskast.

Komdu og uppgötvaðu orkuna, viskuna og umbreytinguna sem trans getur fært þér á andlegri vegferð þinni.

Athugið að kennt verður á ensku!!!

Sálarrannsóknarfélag Íslands, Reykjavík

Dagsetningar: 10.–11. október 2026

Tímasetning: 10:00-16:00 Báða dagana, með hádegishléi

Verð: 38.200 ISK (Staðfestingargjald 10.000 kr.)

Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

Ath skrifstofan er í sumarfrí út júlí. Á þeim tíma er ekki svarað í síma en tölvupótum á srfi@srfi.is eins fljótt og auðið er.

Leiðbeinandi er Paloma Zendings, en hefur hún starfað sem miðill og heilari frá árinu 1998. Hún er þjálfaður Reiki meistari og kennari, transmiðill, dáleiðari og hefur mikla reynslu af leiðsögn og kennslu.

Paloma er dönsk og er búsett í Roskilde þar sem hún rekur Shanti Spirit Center þar sem hún býður upp á einkatíma og kennir námskeið. Hefur hún kennt ótal heilunar- og miðilsnámskeið í bæði Danmörku, Noregi og Englandi.

Hægt er að kynna sér Palomu á Facebook síðum hennar Paloma Zendings – Clairvoyant Medium & Reiki Master Teacher og Shanti Spirit Center Roskilde.
Og á heimasíðu hennar www.palomazendings.dk.