Miðvikudaginn 10. júní kl. 17:30–18:30 bjóðum við ykkur velkomin í rólegan og nærandi jóga tíma undir leiðsögn Katrínar Myrru, þar sem áhersla er lögð á að róa taugakerfið, tengjast líkamanum og skapa rými fyrir kyrrð.
Tíminn sameinar mjúkt vinyasa flæði, yin jóga, öndunaræfingar, hugleiðslu og djúpslökun í notalegu umhverfi. Markmiðið er að gefa þátttakendum tækifæri til að stíga út úr hraða dagsins og inn í núvitund og jafnvægi.
Tíminn hentar öllum, bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af jóga. Engin krafa er gerð um fyrri þekkingu, aðeins vilji til að mæta eins og maður er.
Katrín Myrra lauk 200 klst. Ashtanga Vinyasa jógakennaranámi í Tælandi árið 2019 og hefur síðan þá kennt jóga á fjölbreyttum stöðum samhliða því að dýpka eigin iðkun og efla þekkingu sína á jóga, öndun og hugleiðslu.
Takmörkuð pláss eru í boði þar sem rýmið tekur að hámarki 15 þátttakendur til að tryggja rólega og persónulega upplifun. Mælt er með að mæta í þægilegum fatnaði.
Verð: 3.000 kr
Tímalengd: 60 mínútur
Skráning á srfi@srfi.is eða í síma 551-8130

