Transheilunarnámskeið með Ásthildi 4-5.mars

Helgina 4. – 5. Mars frá kl 10:00-16:00 mun Ásthildur Sumarliðadóttir
halda námskeið fyrir þá sem vilja læra að vinna með transheilun og
fjarheilun.
Byrjað verður báða dagana á hugleiðslu sem mun efla þitt jarðsamband,
þitt samstarf við þína verndara og leiðbeinendur er koma að þinni
andlegu vinnu og heilunar starfi.
Námskeiðið felst í fræðslu, leiðsögn og æfingum tengdum transheilun og
fjarheilun.
Ásthildur hefur unnið með transheilun frá 2007. Hún er
sambandsspámiðill, OPJ þerapisti, reikimeistari og hefur setið í
transmiðils þjálfun frá 2007-2019. Hefur sótt nokkur transmiðils og
transheilunar námskeið í Arthur Findlay skólanum í Bretlandi.
Ásthildur hefur haldið nokkur námskeið í þjálfun miðilshæfileikans og
transheilunarnámskeið bæði hér heima og í Noregi.
Boðið er uppá kaffi/te og 1.klukkustund fyrir matarhlé.

Námskeiðsgjald er 20.000 kr

Skráning fer fram á srfi.is – skránig á námskeið, srfi@srfi.is eða á skrifstofutíma

Staðsetning: Sálarrannsóknafélag Íslands, Skipholt 50D – ( gengið inn tilbaka ) – Hægt að greiða með korti og Pening – Posi á staðnum.