Þróunarhópur fyrir alla með Ásthildi Sumarliða 2023

Þróunarhópur fyrir alla þá sem vilja efla sína andlegu hæfileika.

Ásthildur mun byrja að leiða hugleiðslu er tengist þeim æfingum
sem hún er búin að ákveða hvert kvöld fyrir sig ásamt fræðslu.

Ert þú næm/ur á fólk, tilfinningar, umhverfi?

Ert þú berdreymin/nn?

kíkir þú i spil eða bolla?

Langar þig að fræðast og læra að vinna með þinn andlega hæfileika
?

Ef svo er þá er þetta rétti hópurinn fyrir þig.

Ásthildur hefur í gengum tíðina þróað með sér einfalda tækni sem
hefur reynst fólki mjög vel við sína andlegu vinnu ásamt því að auka næmnina. Ásthildur hefur alltaf verið næm og byrjaði að lesa í venjuleg
spil á unglingsaldri (spámiðill). Hún hefur verið i transmiðilsþjálfun frá 2007 – 2019 og setið í
þróunarhringjum. Hún er OPJ þerapisti, reikimeistari og hefur farið á nokkur
námskeið í Arthur Findlay skólanum tengt transmiðlun/transheilun og miðlun. Ásthildur hefur haldið ýmis námsskeið hérlendis og erlendis, tengt
miðlun og heilun og verið með vökumiðlun. Einnig hefur hún verið með
tilraunakvöld í tengslum við andleg málefni, sem hafa verið byggð upp á fræðslu
og æfingum.

Námskeiðið verður á fimmtudagskvöldum kl. 19.30 – 22.00 hefst 26.janúar
2023.

Námskeiðsgjald er kr. 40.000.-

Skráning er gegnum email asasumarlida16@gmail.com,
með einkaskilaboðum á FB og einnig hjá Sálarrannsóknarfélagið Íslands í síma
551 8130.