Þjálfun þíns andlega hæfileika með Ragnhildi Sumarliðadóttur 3.-4.febrúar 2024.

Helgina 3. – 4.febrúar verður Ragnhildur Sumarliðadóttir með helgarnámskeiðið Þjálfun þíns andlega hæfileika fyrir byrjendur og lengra komna.

Ragnhildur hefur alltaf haft áhuga á andlegum málum og verið skyggn frá barnsaldri. Hún hefur verið í transþjálfun, heilun, bænahringjum, lært á allskyns spil, bolla, hlutskyggni, vökumiðlun, reiki, opj, fjarheilun og haldið helgarnámskeið bæði í Noregi og á Íslandi. Hún er einnig með þróunarhóp hjá okkur í Sálarrannsóknarfélagi Íslands https://www.srfi.is/throunarhopur-med-ragnhildi/

Ragnhildur hefur sótt fjölmörg námskeið á Íslandi hjá breskum og íslenskum miðlum og hefur auk þess tekið ýmis námskeið í Englandi t.d við Arthur Findlay College  í Stansted Hall.

Námskeiðið verður helgina 3.-4.febrúar frá 10:00-16:00 báða daganna.

Tekið verður hádegishlé.

Verð 25.000kr

Skráning fer fram hér á síðunni https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.

Bóka einkatíma á netinu https://noona.is/saloisland

Við erum í Skipholti 50d 105 Reykjavík.