Sigríður Kristín Sverrirsdóttir byrjar aftur hjá okkur 11.janúar eftir langt hlé

Fimmtudaginn 11.janúar byrjar Sigríður Kristín heilari og heilsuráðgjafi að bjóða upp á einkatíma eftir langt hlé.

 

Sigríður Kristín hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í yfir 30 ár, síðast á líknardeild og móttökugeðdeild, en í því starfi hefur oft komið sér vel að búa að næmni og sterku innsæi. Auk þess hefur hún lokið B.Sc gráðu í Nutritional Medicine, næringarfræði sem byggir m.a. á kenningum Náttúrulækninga og „Functional Medicine.“

Þjálfun Sigríðar Kristínar í andlegum málum hófst fyrir rúmum 10 árum hjá Jennifer Mackenzie (í Noregi) og síðar tóku við námskeið hjá m.a. Sheilu French og Tim Abbott (Ershamstar, í Bretlandi) og Sigurði Kristinssyni, Garðari Jónssyni, Sirrý Berndsen og fleiri miðlum hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands.

Í einkatímunum er leitast við að vinna bæði með sál og líkama og þar er blandað saman heilun, orkuhreinsun, hjúkrunarfræði og næringarráðgjöf.

Tímabókanir á netinu https://noona.is/saloisland/chJ3AwjcXbPXsE9xS/gsRRrQ4ebsEgm8ioH/timeslots?employeeId=chJ3AwjcXbPXsE9xS eða í síma 551-8130.

Við erum í Skipholti 50d 105 Reykjavík

Netfang srfi@srfi.is Sími 551-8130.