Þjálfun miðilshæfileikans með Ásthildi Sumarliða verður helgina 03-04.desember

Vinsæla námskeiðið Þjálfun miðilshæfileikans með Ásthildi Sumarliða verður hjá okkur helgina 03-04.desember.
Á þessu helgarnámskeiði mun Ásthildur Sumarliðadóttir kenna einfalda tækni sem þú getur notað þegar þú vinnur með þinn andlega hæfileika. Þetta námskeið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Þetta námskeið er gott fyrir þá sem hafa áhuga á að efla sinn miðilshæfileika og læra að vinna með hann á einfaldan og auðveldan hátt. Kennsluaðferðina hefur Ásthildur þróað með sjálfri sér og hefur aðferðin reynst mörgum vel.„Ég trúi því að besta þjálfunin sé að gera æfingar sem efla þína næmni í að sjá, heyra og finna“ segir Ásthildur.

Ásthildur Sumarliðadóttir er Reikimeistari, OPJ þerapisti og hefur hún unnið í gegnum tíðina með transheilun, spáð í spil, verið í markvissri transþjálfun síðan 2005 og þjálfun í vökumiðlun. Hún hefur farið á mörg trans/heilunar og miðilsnámskeið í hinum virta Arthur Findlay skóla í Bretlandi.

Námskeiðsgjald er 25.000 kr.
Námskeiðið er frá 10.00-16.00 báða daganna. Hádegishlé frá 12:00-16:00.

Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.