Lögmál aðdráttaraflsins
Þegar hugsun, orka og sál skapa saman
Við búum yfir mun meiri sköpunarkrafti en við gerum okkur oft grein fyrir. Hugsanir okkar, tilfinningar og innri tíðni senda stöðugt frá sér skilaboð – og lífið svarar þeim.
Í þessum hjartnæma fyrirlestri býður miðillinn og heilarinn Paloma Zendings þér að öðlast dýpri skilning á lögmáli aðdráttaraflsins, bæði út frá eigin innsýn og persónulegri reynslu.
Opnaðu hugann fyrir því hvernig meðvituð hugsun, jákvæðar staðhæfingar og kærleiki í núinu geta opnað nýjar dyr og laðað að jákvæðar breytingar á ýmsum sviðum. Svo sem í starfi, samböndum, fjármálum, húsnæðismálum og á lífsleiðinni almennt.
Fyrirlesturinn snýst ekki aðeins um að miðla þekkingu – heldur er hann einnig boð um að enduruppgötva eigin sköpunarmátt, efla traustið á lífinu og læra að vinna með þeirri orku sem þegar er til staðar og vill styðja þig.
Kvöldstund full af innblæstri og aukinni meðvitund. Leyfðu hjartanu að opna dyrnar, á mildan og kærleiksríkan hátt, að því lífi sem sál þín þráir að lifa.
Verð 3500kr
Húsið opnar 19:15.
Kvöldstundin fer fram á ensku.

