Reiki 1 og 2– leyfðu forvitninni að leiða þig

✨ Reiki 1 og 2 – leyfðu forvitninni að leiða þig

Hefurðu fundið fyrir áhuga á heilun og langað að kanna hvað Reiki snýst um? Kannski er kominn tími til að gefa þér rými til að upplifa, læra og hlusta inn á við.

Á Reiki 1 og 2 námskeiðinu færðu að kynnast þessari japönsku heilunarhefð í gegnum fræðslu, persónulega leiðsögn og verklegar æfingar. Þú prófar sjálf/ur, gefur og þiggur Reiki og kynnist leiðum til að flétta iðkunina inn í daglegt líf.

🌿 Reiki 1 – fyrstu skrefin
Þú lærir grunnatriði Reiki, handstöður og sjálfsheilun og æfir þig í að gefa öðrum Reiki. Áherslan er á nærveru, slökun og að öðlast öryggi í iðkuninni.

✨ Reiki 2 – dýpri könnun
Við förum dýpra í iðkunina, kynnumst Reiki-táknum og notkun þeirra og lærum um fjarheilun samkvæmt Reiki-hefðinni.

Þú þarft enga fyrri reynslu. Komdu með forvitnina og leyfðu þér að vera byrjandi.

Kennari er Ívar Örn Þórhallsson, heilari, nuddari, Reikimeistari og Englareikimeistari með yfir 30 ára reynslu af Reiki og heilun. Hann hefur kennt víða um land og erlendis og miðlar reynslu sinni í hlýlegu andrúmslofti þar sem rými er fyrir spurningar, æfingar og persónulega upplifun.

Gefðu þér tíma til að kanna eitthvað nýtt. 💛

Verð 75.000kr fyrir bæði stigin.

Skráning á netinu: https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130