Yoga Nidra með Úlfhildi Harne miðvikudaginn 4. nóvember kl 20:00

Verið velkomin í heilandi og endurnærandi stund í djúpslökun með Yoga Nidra.

Yoga Nidra; Svefn jógana er leidd hugleiðsla og djúpslökun, liggjandi á dýnu í notalegu umhverfi. Leitt er inn í djúpt slökunarástand sem losar um spennu og streitu í líkama og huga ásamt því að vekja náttúrulegu heilunarboð líkamans.

Gott er að vera í þægilegum og hlýjum klæðnaði.

Úlfhildur Harne leiðir stundina, en hún er lærður Yoga Nidra leiðbeinandi, nuddari og markþjálfi ásamt því að starfa sem miðill og heilari.

Miðvikudaginn 4. nóvember frá 20:00-21:00.

Húsið opnar 19:45

Verð: 3.500 kr.

Skráning á srfi@srfi.is eða í síma 551-8130.