Fyrirlestur um astralferðalög og utanlíkama reynslur með Gísla Guðmundssyni.

Hefur þú einhvern tímann velt fyrir þér hvað gerist þegar við förum út fyrir líkamann í svefni eða djúpri hugleiðslu? Eða hvernig við getum skoðað aðra veruleika í gegnum draumvitund? Þá er þessi fyrirlestur fyrir þig.

Ég. Gísli Guðmundsson er stjórnarmeðlimur í Sálarannsóknarfélagi Íslands og tölvunarfræðingur, ætla að deila með ykkur minni innsýn í þessa heillandi heima. Í mínu starfi legg ég áherslu á vísindalega nálgun, en stundum skortir okkur tæknina til að framkvæma rannsóknir á vissum sviðum. Þá þurfum við að byggja á kenningum og skilningi okkar á eðlisfræði til að kanna þessi óvenjulegu fyrirbæri.

Í þessum fyrirlestri mun ég fjalla um hvernig fólk hefur upplifað sig fara út fyrir líkamann, hvaða fyrirbæri má sjá í astralheiminum, og hvernig þessi reynsla getur tengst öðrum veruleikum og jafnvel verum sem gætu verið utan okkar hefðbundnu skilnings – verur eða vitundir úr öðrum víddum. Einnig mun ég skoða rannsóknir á astralferðalögum, þar á meðal rannsóknir Monroe Institute, þar sem astralplanið var rannsakað ítarlega, og Stargate-áætlun CIA, sem rannsakaði þessa reynslu sem hluta af leynilegum rannsóknum á fjarvitund og fjarútsýn.

Til að kaupa aðgang af fyrirlestrinum sendu okkur póst á srfi@srfi.is

Greiðsluupplýsingar verða sendar og eftir að greiðsla hefur borist verður þér sendur fyrrlesturinn.

Verð 2000kr
Fyrir félagsmenn 1000kr

Gísli heldur utan um þessa frábæru Draumaráðningasíðu hér á facebook https://www.facebook.com/groups/2352597941770431