Verund og vitund með Sif

Kæra þú,
Langar þig að taka á móti heilun og um leið að efla andlegu hæfileikana þína?

Ég býð þig hjartanlega velkomin í heilunarrými sem aðstoðar þig við að tengjast þínum innri kjarna og ná daglegri tengingu við þitt æðra sjálf á meðan að þú tekur á móti áru- og ljóskóða heilun.

Ásetningurinn er að opna á nærandi rými ásamt því að þróa hæfileikana þína, tengjast sjálfsuppsprettunni, þínum innri sviðum sem og að fá aðstoð við að skapa velmegun og andlega næmni í þínu lífi.

Þessir tímar innihalda skapandi æfingar við að dýpka og virkja tengslin þín við þitt innsæi og æðra sjálf til að skapa heilnæma vegferð í lífinu.

Þú ert hjartanlega velkomin að næra þig andlega og tilfinningalega og um leið að finna öruggt rými til að efla hæfileikana þína.

Þú mátt búast við:

~Heilun~

~ljóskóða virkjun~

~áruhreinsun~

~skapandi æfingar til að virkja þinn næmleika~

~tengingu við þitt æðra sjálf~

~tón & söng heilun~

Tíminn er frá 20:00 – 22:00

Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og fólk á öllum aldri er velkomið.

Stakur tími er á 5.500 kr.

Þú færð 1000 kr. afslátt á tímann ef þú mætir í fleiri en tvo tíma.

Hafðu samband í gegnum contact@homeofgaia.com til að skrá þig á námskeið eða á skrifstofutíma hjá Sálarrannsóknarfélagi íslands.

Hlakka til að sjá þig/ykkur Sunnudaginn 11.09.22 kl 20:00

Bestu kveðjur,

Sif Yraola