Guðbjörg býður uppá einkatíma í september

Guðbjörg verður með einkatíma 21-22. september. Hægt er að panta tíma á Sálarrannsóknarfélag Íslands | Noona eða á skrifstofutíma

Áruteiknun

Guðbjörg tekur einkatíma í áruteiknun miðlun. Einnig teiknar hún verndara þinn ef þú hefur komið áður. Það má spyrja leiðbeinandan um hvað sem er og þú færð svar.

 Ég byrja í bænar hring í Sálarrannsóknar félaginu í Keflavík með góðu fólki,  þar opnaðist nýr heimur og mjög fljótlega sýndu mínir leiðbeinendur myndir af fólki í litunum í áruni, svo kom upplýsinga flæðið sem tengist bæði þessu lífi og fyrri lífum. Ég er fædd með andlega eiginleika sem eru ættgengir eins og svo margar góðar gjafir frá Guði.

No 1 Áru teikning,

sem byggir á að teikna áru þína miðað við hvar þú ert stödd/ur í andlegum þroska þínum og hvaða eiginleika þú kemur með þér inní þetta líf.

Það koma upplýsingar um hverjir þínir verndarar eru og hvernig þeir vinna með þér.

  Áru vinnslan er góður grunnur af andlegri vitund og oft á fólk auðveldara að skilja ýmsa þætti í sér eftir svona fund. (fyrri lífs bergmál hefa oft þátt í tilfiningum okkar)

No2 Verndara teikning

Ef fólk hefur komið áður, teikna ég þinn verndara þinn

(Leiðbeinanda) og þú getur spurt hann um það sem þú þarft að vita, þér er svarað öllu sem þú mátt vita og er í þínum karma að fá núna.

 Heilun og fyrirbænir ég tek fólk í heilun leiðréttir skekkjur í orkunni. Ég hef alltaf verið með fyrirbænir og ég rita nafn viðkomandi og dvalar stað viðkomandi einstaklings. Ég tek aldrei neitt fyrir bænir enda er það Guðs gjöf að fá verið milliliður.

Andlegur kennari síðan 1998.Ég fékk alla mína vitneskju um kennslu aðferðir frá andans heimum. Um leið og fólk skráir sig á námskeið fer ákveðin vinnsla í gang sem er undurbúningur fyrir námskeiðið. Kennt er að tanga við sína eigin hjálpendur, læra að þekka, og taka á móti upplýsingum og túlka þær. Svona nám er mjög góður undirbúningur fyrir allt annað í andlegri vinnu.