Tenging við kvenna frumkraftinn
Vertu hjartanlega velkomin kæra kona
Ef þig langar til að tengjast og styrkja samband við sjálfa þig og
aðrar systur, stíga inn í styrkinn þinn með mildi og mýkt þá er þessi
nærandi kvennahringur fyrir þig. Þú færð tækifæri á að eiga fallega
kvöldstund með öðrum konum og vera sú kona sem þú ert.
Þessi stund er byggð upp á:
Leiddri hugleiðslu
Að vera í núinu
Skynjun líkamans
Léttum hreyfingum/ dansi
Góð samvera
Söng og trommur
Flæði
Þú getur upplifað:
Tengingu við sjálfa þig
Betri skynjun
Hugrekki
Innri frið
Náttúrutengingu
Sátt og skýrleika
Að sleppa tökum
Opið Hjarta
Um kennarann:
Sigrún Björk hefur verið næm alla tíð og hefur gott innsæi. Hún hefur
verið að hjálpa konum að tengjast sinni kvenlegu orku með innsæi og fá
dýpri þekkingu á sjálfri sér.
Hún blandar saman sinni þekkingu en hún hefur lært NA-shamanisma hjá
Otter Dance School of Earth Medicine og OPJ, er reikimeistari,
slökunarjógakennari og markþjálfi. Hún hefur sótt sér þekkingu víða og
hefur verið í þróunarhring. Einnig hefur hún haldið trommudraumferðir,
jóganámskeið, kvennahring og hugleiðsluhring.
Hvað á að taka með:
Hlý föt
Vatnsbrúsa
Þína uppáhalds krús fyrir heita drykki
Teppi og púða
Hljóðfæri ef það kallar á þig
Hvar: Sendi staðsetningu við skráningu
Skráning: á srfi@srfi.is eða í síma 551-8130
Mikilvægt að skrá sig
Tímasetning: 9. sept kl. 18:00 – 20:00
Verð: 5.500 kr
Innifalið: Jurtate og létt nærandi snarl
Tryggðu þér sæti tímanlega til að vera með í þessu ævintýri ![]()
Komdu eins og þú ert
Leyfðu frumkraftinum að flæða

