Andleg skref, Þróunarhópr Andreu og Bjössa

Hefur þú áhuga á andlegum málum?
Þá gæti þetta verið hópur fyrir þig!
Kvöldstundir þar sem þú kynnist orkunni sem býr innra með þér og hvernig þú getur nýtt hana þér og öðrum til góðs. Hugleiðsla í hverjum tíma, umræður og æfingar. Þú kynnist hugleiðslu, heilun, miðlun og hvernig þú getur eflt þitt eigið innsæi og skynjun. Markmiðið er að eiga uppbyggjandi og skemmtilegar kvöldstundir saman, sem styrkja þig.

* Hefst 6. september
* Sunnudagskvöld kl.20-22
* 4 skipti
* Haldið hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands, Skipholti 50d, Reykjavík
* Verð 30.000 kr
* Leiðbeinendur: Andrea Margeirsdóttir og Björn Guðmundsson.
* Skráning: https://www.srfi.is/skraning-namskeid/eða í síma 551-8130.

Um leiðbeinendur:
Andrea
er með B.A í sálfræði, er félagsráðgjafi, yoga kennari og yoga nidra kennari. Hún hefur sótt fjölda námskeiða tengdum andlegum málum, setið í þróunarhringjum og verið í þjálfun hjá góðum kennurum. Andrea er með aðstöðu hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands og tekur þar á móti einstaklingum í einkatíma í miðlun, heilun/vinnu á bekk.
Frekari upplýsingar um Andreu má finna á fb síðu hennar: Í átt að betri líðan

Björn
er Orkupunktajöfnunar (OPJ) þerapisti og kennari. Hann hefur verið í andlegum málum í yfir tuttugu ár. Hann hefur í gegnum árin komið að þjálfun miðilsefna, haldið námskeið í orkupunktajöfnun (OPJ) og verið með þróunarhóp hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands. Björn vinnur jafnframt í einkatímum með Orkupunktajöfnunar meðferðina hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands
Fb síða: OPJ námskeið Bjōssa