Námskeið í Fornheilun (Ancient healing) með Ásthildi Sumarliða.

Ásthildur Sumarliðadóttir mun byrja með námskeið í Fornheilun eða Ancient healing fimmtudaginn 19.mars. Námskeiðið er í 5 skipti.

Þessi ævaforna heilunartækni er þróuð af þremur ættbálkum. frumbyggjum Ástralíu, frumbyggjum Kanada og Shamana í Sri Lanka.

Þessi heilunartækni samanstendur af Ayurveda, Yoga, shamanism og seiðgöldrum. Frumbyggjarnir bjuggu mjög afskekkt, þessi öfluga heilunartækni var þeirra lækning og meðal.

Á þessu 5.vikna námskeiði verður farið í grunninn á Ancient Healing, undirbúning fyrir heilun, öndunartækni,hugleiðslu, mataræði, verndina,hvernig hægt er að bæta svefn,verklegar æfingar og orkuvinnu.

Ancient healing lærði Ásthildur hjá sínum lærimeistara Rahaul Bharti á mánaðar námskeiði í Nepal.

Ásthildur er Reikimeistari, OPJ þerapisti, lært og unnið með Transheilun. Verið í transþjálfun.Starfar hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands og fl. félögum.
Hún hefur haldið fjölda námskeið tengt heilun,miðlun þ.m hið vinsæla námskeið Þjálfun Miðilshæfileikans.

Fimmtudagar frá 19:30-22:00.

5 skipti.

Verð 30.000kr

Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

The current image has no alternative text. The file name is: AsthildurSumarlida.jpg