Námskeið í Heilun með Sigríði Elínu Olsen
Komdu og kannaðu heim heilunar með mér og öðrum. Heilun er meðferð sem miðar að því að koma jafnvægi á orkuflæði líkamans og stuðla að vellíðan líkama og sálar. En það er bara byrjunin á því dásamlega ferðalagi sem heilun er.
Farið verður í undirstöðatriði heilunar og við gerum alls konar æfingar sem efla okkur í því að heila okkur sjálf og aðra. Í svona vinnu fer af stað mikil og góð sjálfsvinna.
Námskeiðið skiptist í :
Heilun með og án tónlistar. Heilun með og án snertingar. Transheilun. Heilun á bekk og í stól. Fjarheilun. Heilun dýra.
Námskeiðið hentar byrjendum og aðeins lengra komnum.
Byrjar mánudaginn 26. október frá kl 17:30-19:00.
5 skipti
Verð 25.000kr
Verð 25.000kr
Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.
Sigríður Elín hefur alltaf verið næm og hefur verið í andlegum málum í ytfir tuttugu ár. Hún hefur verið í þróunarhringjum og þannig lært að þróa með sér miðilshæfileika sína,
Sigríður starfar sem miðill, og heilari hjá félafinu einnig býður hún einnig upp á dýraheilun þar sem dýrið er statt.
Hún hefur bæði verið með þróunarhópa og námskeið hjá félaginu.
Námskeiðin hennar eru: Viltu Þróa þínu andlegu næmni, Viltu læra Tarot, Heilun og hugleiðsla og Dulspekinámskeið.

