Þróun þíns innri manns með næmni og skynjun með Agnari Árnasyni

Ég býð ykkur í að kanna með mér alheiminn sem við þekkjum svo vel. Við munum líta á hann frá svolítið öðru sjónarhorni en venja er og öðlast þannig tækifæri til að sjá inn í nýjar víddir hans og óvænta auðlegð.

Við lifum í orkuheimi sem umlykur okkur. Á þessum námskeiðum mun ykkur (  verða kleift að sjá þetta orkusvið betur, skilja þau sannfæringamynstur sem eru ríkjandi og þá fjarorku annara sem hefur áhrif á okkur. Þetta eru námskeið í því að gera hið ómeðvitaða meðvitað og kafa ofan í dularheima ósýnilegra krafta sem búa í okkur sjálfum og umhverfis okkur.

Það er margt til utan hinna fimm skynfæra okkar og það getur haft áhrif á okkur Með auknum skilningi á þessari orku getur hún orðið hjálpartæki sem auðveldar okkur förina hvert sem henni er heitið. 

Kveðja Agnar 

Námskeiðinu er skipt í tvo hluta. Fyrsti hluti er 10.skipti en seinni hluti sem er beint framhald af fyrra námskeiðinu er 4.skipti.

Hefst 10.janúar 2024

Verð

Fyrsti hluti  10.skipti 45.000kr

Seinni hluti  4.skipti 20.000kr

Miðvikudagar frá 20:00-22:00.

Skráning fer fram á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.