Þjálfun skyggnigáfunar og miðilshæfileikans 21.-22. mars kl. 10:00-16:00
með Paloma Zendings
Viltu læra meira um andlegar gjafir þínar? Þetta kröftuga helgarnámskeið er fyrir öll sem vilja kanna og styrkja innsæi sitt og miðilsfærni og hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Námskeiðið einkennist af verklegum æfingum þar sem unnið er í pörum. Gerðar verða æfingar í:
· Hlutskyggni
· Lestur gegnum myndir
· Skyggnst inn í fyrri líf
· Tengingar við leiðbeinendur
· Innri sýn
· Tengingar við framliðna
Einnig verða leiddar hugleiðslur til að styðja þátttakendur í opna fyrir tengingar sínar, jartengja sig og vernda sig.
Skoðaðar verða mismunandi gerðir andlegrar næmni og farið yfir siðferði og ábyrgð þegar unnið er með skjólstæðingum.
Verð: 34.000 kr.
Tekið verður matarhlé
Kaffi og te á staðnum.
Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.
Athugið að kennt verður á ensku.
Paloma hefur starfað sem miðill og heilari frá árinu 1998. Hún er þjálfaður Reiki meistari og kennari, transmiðill, afturförsmeðferðaraðili og hefur mikla reynslu af leiðsögn og kennslu.
Hún er dönsk og rekur Shanti Spirit Center þar sem hún býður upp á einkatíma og kennir námskeið. Hefur hún kennt ótal heilunar- og miðilsnámskeið í bæði Danmörku, Noregi og Englandi.
Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.

