Skyggnilýsing með Paloma Zendings föstudaginn 20.mars

Skyggnilýsing með Paloma Zendings föstudaginn 20.mars kl 20:00.

Paloma hefur starfað sem miðill og heilari frá árinu 1998. Hún er þjálfaður Reiki meistari og kennari, transmiðill, afturförsmeðferðaraðili og hefur mikla reynslu af leiðsögn og kennslu.

Hún er dönsk og rekur Shanti Spirit Center þar sem hún býður upp á einkatíma og kennir námskeið. Hefur hún kennt ótal heilunar- og miðilsnámskeið í bæði Danmörku, Noregi og Englandi.

Paloma hefur verið starfandi sem miðill og heilari frá árinu 1998.

Hægt er að kynna sér Palomu á Facebook síðum hennar Paloma Zendings – Clairvoyant Medium & Reiki Master Teacher og Shanti Spirit Center Roskilde. Og á heimasíðu hennar www.palomazendings.dk.

Hægt er að skrá sig fyrirfram á skyggnilýsinguna með því að hafa samband á srfi@srfi.is eða í síma 551-8130.

Ath að einungis skráð og greidd sæti eru tryggð.

Verð 5000kr

Skyggnilýsingin fer fram á ensku.

Húsið opnar 19.30