Úlfhildur Harne Örnólfsdóttir
(Úlla Harne)
Miðill og heilari
Úlfhildur Harne býður upp á einkatíma í Tarot lestri, ástvinamiðlun, áruteikningu og heilun.
Hún er lærður heilsunuddari, Usui Reiki meistari, markþjálfi og Yoga Nidra leiðbeinandi ásamt því að halda úti Facebook síðunni Úlfsaugu Aura þar sem hún vinnur með spil, miðlun og heilun á margvíslegan máta. Hún hefur sótt sér þekkingu og þjálfun frá ýmsum stöðum, þar á meðal til Englands í The Arthur Findlay College.
Tarot lestur
Lestur og miðlun með Tarot spilum.
Hægt er að rýna í fortíð, nútíð og framtíð ásamt því að fá leiðsögn og svör við ýmsum spurningum.
Ástvinamiðlun
Miðlun með tengingu við framliðna í þeim tilgangi að fá skilaboð og leiðsögn frá ástvinum og leiðbeinendum.
Áruteikning
Miðlun með litum og formum til að veita innsýn og leiðsögn út frá orku einstaklingsins.
Heilun
Notaleg og endurnærandi stund þar sem unnið er með aðferðum Reiki og Transheilunar. Heilunin fer fram á meðferðarbekk, í fullum klæðum og með lágmarks snertingu, eða engri snertingu ef þess er óskað.
Svæðameðferð
Notalegt þrýstipunktanudd á fótum sem vinnur gegnum taugakerfið á önnur kerfi líkamans. Góð meðferð til að ná djúpslökun.
Tímabókun á netinu https://noona.is/saloisland eða í sima 551-8130.
Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.
Við erum í Skipholti 50d
