Ég hef alltaf verið næm frá barnæsku en það hefur opnast meira fyrir næmnina með aldrinum.
Ég vinn með læknum að handan sem aðstoða og vinna í gegnum mig. Stundum koma þeir með skilaboð og eða leiðbeiningar um hvað betur megi fara hjá einstaklingnum.
Ég hef verið í andlegum málum til fjölda ára og hef farið á mörg námskeið sem hafa verið á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands.
Ég hef einnig sótt námskeið hjá Arthur Findley Spiritual collage í Bretlandi.
Ég stunda læknamiðlun, miðlun að handan og nota tarotspil. Einnig hef ég reynslu af skyggnilýsingu.
Ég vinn í ljósinu og kærleikanum.
Ég óska alltaf eftir því að fólk sem kemur til mín sé með opinn huga“
Kær kveðja Linda
Tímabókanir á netinu: https://noona.is/saloisland eða í síma 551-8130.

