Á þessu námskeiði heldur Jón utan um hópinn og skapar öruggt rými þar sem þátttakendur fá að stíga inn í flæði sitt.
Áherslan er á að hlusta á orkuna og leyfa henni að leiða – engin ein leið er rétt eða röng. Flæðið getur tekið á sig ýmsar myndir: teikningu, miðlun eða aðrar skapandi tjáningar.
Allt flæði er leyfilegt og því er haldið utan um ferlið þannig að hver og einn fái æfingar sem hjálpa honum að uppgötva hvert orkan kallar hann að fara.
Markmiðið er að leyfa hlutunum að gerast án þess að þrýsta orkunni í ákveðna átt. Ritskoðun er sett til hliðar og þátttakendur eru hvattir til að treysta ferlinu og leyfa orkunni að velja.
Æfingarnar snúast um að stíga út úr huganum, sleppa stjórn og vera til staðar í flæðinu – að upplifa, finna og tjá sig af einlægni.
Ef þessi lesning höfðar til þín ekki hika við að koma og leyfa orkunni að flæða þá færðu að upplifa þína hæfileika.
Sama hvað mikið eða lítið þú hefur upplifað eða gert þá ert þú velkomin að taka þátt.
Allir munu fá æfingar út frá þeirra stað.
Námskeiðið er frá 12:00-17:00 báða daganna.
Verð 19.000
Kaffi og te í boði
Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

