Hláturjóga með Sigrúnu Björk Einarsdóttur

HLÁTURJÓGA
Finnst þér gaman að hlæja eða langar þig að prófa eitthvað nýtt? Þá er þessi viðburður fyrir þig 🙂

Langar þig kannski til að hlæja meira og öðlast innri styrk og gleði. Með því að koma í hláturjóga léttir það undina þína.Hláturjóga er byggt á hópavinnu, augnsambandi, öndun og hláturæfingum,sem eru leikandi og stigmagnast í gleði og hlátri. Við endum síðan með því að fara í tónslökun.

Ávinningur með því að fara í hláturjóga er:

  • Það léttir andann.
  • Minnkuð streita,
  • Hamingja og gleði.
  • Styrkir sálina.

Allir eru velkomnir, enda er þetta góð skemmtun og hlátur lengir lífið  🤣 

Hlakka til að sjá ykkur, ljós og kærleikur.
Sigrún Björk – Hláturmildi Björninn

Hvar:
Sálarrannsóknarfélag íslands, Skipholt 50d
Dagsetning: Föstudagur 20 .febrúar
Tími: Kl.17:30
Verð: 5.000 kr

Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130