Hafdís Arinbjörnsdóttir Sambandsheilari og OPJ þerapisti verður hjá okkur helgina 17.- 28.febrúar.

Hafdís vinnur með  sambandsheilun þar sem oft koma ættingjar, vinir og fleiri í heimsókn með skilaboð, minningar eða bara til að koma og vera með á meðan heilun stendur yfir. Enginn tími er eins og því ekki alltaf sem einhver gerir vart við sig en heilunin og þær ljósverur sem vinna með Hafdísi eru ávallt til staðar.

Hafdís endar alla tíma á því að skrifa niður skilaboð og fleira sem kemur á meðan á tímanum stendur, misjafnlega mikið og einnig ef eitthvað kemur á meðan hún situr og skrifar. Viðkomandi getur svo tekið það með sér heim. 

Á meðan liggur viðkomandi og heldur afram að taka við þeirri heilun sem enn er í vinnslu þar til hún slítur tímanum.

“Það er ekki hægt að segja að ég sé ekki búin að vera með aðra höndina í þessum málum síðan ég var rúmlega tvítug, því í mörg ár hef ég miðlað og heilað ættingja og vini, farið á námskeið og fundið fyrir, heyrt og séð. 

Enn með hjálp frá yndislegu fólki og vina minna að handan hef ég hafið það góða og fallega starf að heila og miðla til þeirra sem það vilja..

Hafdís Arinbjörnsrdóttir