Gyðjuhringur með Sigrúnu Björk Einarsdóttur sunnudaginn 8.febrúar kl 19:30

Vertu velkomin í gyðjuhring kæra kona.


Langar þig að tengjast og styrkja samband þitt við sjálfan þig og
aðrar systur í hópnum.

Stíga inn í styrkinn þinn með mildi og mýkt þá
er þessi nærandi kvennahringur fyrir þig.

Þú færð tækifæri til þess að
eiga fallega kvöldstund með öðrum gyðjum og vera sú konan sem þú ert.
Saman skapar hópurinn spennandi rými til að öðlast betri skilning,
hlýju, virðingu og tengingu við sjálfan sig og aðrar konur í hópnum. Í
þessu örugga rými færðu að muna hver þú ert og öðlast innri styrk og
vekja upp innra barnið og lífskraftinn innra með þér.

Þessi stund er byggð upp á leiddri hugleiðslu og léttum hreyfingum þar sem þú mætir
sjálfri þér í mildi. Við munum spjalla saman, skapa og hafa gaman
saman. Við gerum stuttar æfingar eins og til dæmis  vekja upp
sköpunargyðjuna innra með þér.

Það er allt í lagi að gera vitleysu eða
kunna lítið að skapa/teikna leyfðu þér að vera eins og þú ert. Við
endum svo á slökun og tónheilun þar sem þú stígur inn í kraftinn sem
ný útgáfa af þér.

Leiðsögn er í höndum Sigrúnar Bjarkar sem hjálpar konum að tengjast
sinni kvenlegri orku með innsæi og dýpri þekkingu á sjálfri sér betur.
Gott að koma í þægilegum fötum og gyðju töfrana þína ✨️

Hlakka til að sjá ykkur, ljós og kærleikur.
Sigrún Björk

Hvar:Sálarrannsóknarfélag íslands, Skipholt 50d
Dagsetning: Sunnudagur 8.febrúar
Tími: Kl. 19:30
Verð: 5.000 kr
Skráning: https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00