Einstaklingsnámskeið í miðlun og heilun. (Netnámskeið)Leiðbeinandi Einar Axel Schiöth

The current image has no alternative text. The file name is: 38e59abf-ba58-4861-81aa-79224765dc22.jpg

Einstaklings námskeið í miðlun og heilun (Netnámskeið)

Leiðbeinandi Einar Axel Schiöth.

1. Jarðtenging og orkusúla Farið yfir nokkrar aðferðir til að jarðtengja sig og hvernig skal setja upp orkusúlu í herbergið eða húsið sem viðkomandi er í, mjög gott að setja hvorutveggja í gang áður en andleg vinna hefst.

2. Vernd Farið yfir nokkrar hagnýtar aðferðir til að vernda sig og orkuna sína. Mikilvægt er að setja upp þá vernd sem viðkomandi er sáttur við og treystir áður en andleg vinna hefst

3. Hugleiðsla Grunnaðferðir í hugleiðslu og hvernig skal tengjast við sína andlegu leiðbeinendur og hvernig á að gera þá að samstarfsaðilum því þeir eru með okkur í okkar andlegu vinnu og hjálpa okkur við allt sem við erum að gera í andlegum málum. Einnig hvernig við tengjumst okkar innri verund og hvernig við getum notað hana til að vinna úr áföllum, áhyggjum og öllu því sem á okkur dynur í amstri dagsins. Hugleiðsla er besta verkfærið sem við höfum aðgang að fyrir innri vinnu

4. Innsæi Hvernig best er að virkja það og hvernig best er að nýta sér og styrkja það svo það geti orðið meðvitaður hluti af okkar lífi og hjálpað okkur að taka ákvarðanir og sent okkur skilaboð um allt sem okkur langar til að vita og væri best fyrir okkur að gera

5. Heilun Hvernig best er að virkja orkuna og stýra henni á rétta staði og hvernig skal bera sig að við heilun og fjarheilun þannig að orkan eigi greiða leið þangað sem hennar er óskað

6. Miðlun næmni Farið í gegnum tengingar og hvernig skal tengjast við hið æðra og taka við skilaboðum og miðla þeim áfram óbrengluðum. Þau koma ritskoðuð til okkar og því flinkari sem við eru að láta þau flæða til viðkomandi því betra

7. Trú og traust Að trúa því að maður geti gert það sem maður vill, treysta á sjálfan sig og trúa því að maður eigi það skilið. Hér stoppum við öll mislengi.

8. Sjálfstraust og þolinmæði Að finna fyrir öryggi og sjálfstrausti þegar skilaboðin koma og þora að miðla þeim áfram, til þess þarf þor og áræði, sérstaklega ef manni finnst þau vera neikvæð eða gróf að einhverju leiti en æfingin skapar meistarann. Það er mikilvægt að hafa mikla þolinmæði við andlega iðkun því ef reynt er að flýta fyrir hlutum eða ýta á eftir hlutum þá í raun ýtum við þeim á undan okkur og tefjum meira fyrir en annars.

9. Annað sem gaman er að spá í svo sem pendúlar, prjónar, spil, hlutskyggni, finna týnda hluti og svo mætti lengi telja

10. Spurningar Eftir því sem á líður vakna spurningar um ýmsa hluti og því er mikilvægt að skrifa hjá sér spurningar og koma svo með þær í næsta tíma. Það eru til svör við öllu.

Námskeiðstími eftir samkomulagi.
Verð 12.500kr.

Skráning á netinu: https://noona.is/saloisland/book… eða í síma 551-8130.

Skráning á biðlista er á srfi@srfi.is Ennig er hægt að skrá sig í síma 551-8130.

Skrifstofan er opin mánudaga- fimmtudaga frá 13:00-16:00