Ertu næm/ur? Viltu kanna andlega heiminn, tengingar þínar og næmni?
Ég ætla að bjóða upp á sex skipti þar sem við könnum alheimsorkuna saman með ýmsum leiðum.
Við ætlum að fara í undirstöðuatriði þess að skynja orku og miðla því sem við sjáum, finnum eða verðum vör við, bæði með og án spila, skoðum heim pendúla og heilunar, orkusteina og rýnum í tölur og liti og hvað það þýðir fyrir okkur.
Einnig ætlum við að finna hvernig hugleiðsla hentar okkur best, skynjum okkar leiðbeinendur ásamt því að jarðtengja okkur og vera í styrknum okkar, kyrrum hugann, hlustum á innsæið og fræðumst um töfrana sem gerast þegar við fylgjum innsæinu okkar.
Námskeiðið byggist á því að við, hvert og eitt okkar fáum að túlka og segja það sem við finnum í öruggu umhverfi. Við setjum ekki kröfur á okkur eða aðra um beina miðlun frá ástvinum.
Við ætlum að skoða okkur sjálf út frá okkur sjálfum sem einstaklingar og finna öryggi og yfirvegun í orkunni okkar fyrst og fremst.
Allt annað er bara spennandi óvissuferð. Ég hlakka til þessarar ferðar með ykkur um víddir alheimsorkunnar.
Takmarkað pláss í boði.
Byrjar mánudaginn 16.mars kl 17:30- 19:00
6 skipti
Verð 30.000kr
Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.


