Aðlöðunaraflið með Þormóði Símonarsyni miðvikudaginn 04.október kl 20:00.

Fjallað verður um aðlöðunaraflið (e. Law of attraction) og aðferðir til að nýta það sem best í daglegu lífi. Kynnt verður spennandi og hugvíkkandi ferðalag í gegnum námskeið Þormóðs um aðlöðunaraflið. Það veitir þátttakendum innsýn og skilning á því að nýta sér aðlöðunaraflið til að láta drauma rætast. Það er frábært að vita til þess að það eru engin takmörk. Hann mun einnig tala um þroskabraut hvers og eins í samhengi við aðlöðunaraflið og hvernig draumar okkar varða leiðina að andlegum þroska.

Þormóður ákvað árið 2001 að gera aðeins það sem myndi bæta hann á einhvern hátt.  Þessi ákvörðun hefur leitt hann síðan og gert líf hans afar skemmtilegt, stundum erfitt en líka gefandi.

Árið 2016 var Þormóður  í námi hjá Dr. Joe Vitale sem vottaði hann sem leiðbeinanda í aðlöðunaraflinu eftir að ég stóðst skriflegt próf. Þar dýpkaði þekkingin til muna og hann tengdi hluti sem hann hafði áður lært en ekki sett í samhengi við aðlöðunaraflið, t.d. fyrirgefningu.

Bókin um aðlöðunaraflið verður til sölu á staðnum en er einnig til sem hljóðbók hjá Storytel:

https://www.storytel.com/is/books/a%C3%B0l%C3%B6%C3%B0unarafli%C3%B0-ekkert-leyndarm%C3%A1l-lengur-1972065

Húsið opnar opnar 19:30.

Allir velkomnir

Verð 1500 kr

Frítt fyrir félagsmenn.