Tarot – Saga sálar
Helgarnámskeið fyrir alla sem vilja kynnast heimi Tarot spilanna.
Námskeiðið byggir á Tarot kerfi Rider-Waite-Smith og fer fram í formi fyrirlestra, fræðslu og verklegra æfinga. Unnið verður ýmist stakt eða í pörum.
Þátttakendur fá til eigu hefti með samsafni af Tarot lögnum, sumar hverjar sem verða notaðar við æfingar á námskeiðinu. Þátttakendur hafa sín eigin spil meðferðis og gott er að hafa glósubók og skriffæri.
Námskeiðið hentar vel fyrir byrjendur, sem og lengra komna.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Sögu og uppruna Tarot spilanna
Hringrás og þroskasaga sálarinnar í Tarot
Túlkun og táknmyndir spilanna
Æfingar í Tarot lestri
Tenginguna við spilin og spáþega
Ýmis skemmtileg talna- og stjörnuspeki
Alls kyns fróðleikur sem gagnast til læra á Tarot stokkinn þinn og viðhalda þekkingunni
Kennari er Úlfhildur Harne, miðill og heilari.
Úlfhildur er lærður heilsunuddari, Usui Reiki meistari, markþjálfi og Yoga Nidra leiðbeinandi ásamt því að halda úti Facebook síðunni Úlfsaugu Aura þar sem hún vinnur með spil, miðlun og heilun á margvíslegan máta. Hún hefur sótt sér þekkingu og þjálfun frá ýmsum stöðum, þar á meðal til Englands í The Arthur Findlay College.
Námskeiðið fer fram hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands og er kennt báða dagana frá kl. 10:00-16:00
Við byrjum hverja stund á sameiginlegri hugleiðslu til að núllstilla okkur og sameinast í rýminu og gert er ráð fyrir hádegishléi og kaffipásum yfir daginn.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Námskeiðsgjald er 30.000 kr.
Takmarkaður fjöldi kemst að á námskeiðið og fer skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

