Þróun andlegrar næmni með Úlfhildi Harne

Þróun andlegrar næmni

Verið velkomin á námskeið þar sem við könnum ólíkar tegundir og aðferðir andlegrar næmni. Allir hafa í sér eiginleika og hæfni til andlegrar næmni og skynjunar og geta þróað hana og þroskað á sinn hátt. Á námskeiðinu munum við kanna ýmsar tegundir skynjunar, heilunar og miðlunar og hvernig við vinnum með orkuna fyrir okkur sjálf og aðra. Förum yfir undirstöðuatriði skynjunar, jarðtengingar og finnum öryggið með orkunni og innsæinu.

Tímarnir byggjast upp á hugleiðslum, fræðslu og umræðum og alls konar skemmtilegum æfingum og tilraunum þar sem allir fá tækifæri til að spreyta sig.

Farið verður yfir ákveðin uppistöðuatriði í hverjum tíma og æfingar gerðar eftir takti og áhuga hópsins.

Kennari er Úlfhildur Harne, miðill og heilari.

Úlfhildur er lærður heilsunuddari, Usui Reiki meistari, markþjálfi og Yoga Nidra leiðbeinandi ásamt því að halda úti Facebook síðunni Úlfsaugu Aura þar sem hún vinnur með spil, miðlun og heilun á margvíslegan máta. Hún hefur sótt sér þekkingu og þjálfun frá ýmsum stöðum, þar á meðal til Englands í The Arthur Findlay College.

Námskeiðið fer fram hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands og er 6 skipti, frá kl. 18:00-20:00.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Námskeiðsgjald er 30.000 kr.

Takmarkaður fjöldi kemst að á námskeiðið og fer skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

Ath að skrifstofan er í sumarfrí til 3.ágúst á þeim tíma er ekki svarað í símann. Skráningum á netinu svarað með bestu getu eða eftir 3.ágúst