Miðvikudaginn 25.febrúar kl 20:00
Æfingakvöld spá og/eða miðlun.
Hefur þú áhuga á að spá í spil eða miðla en vantar rými til að æfa þig með öðrum?
Þessi kvöld henta bæði byrjendum og lengra komnum.
Miðvikudaginn 25.febrúar klukkan 20:00 verðum við með opið hús fyrir þá sem vilja mæta með stokkinn sinn til að æfa sig með spilunum eða að miðla og eiga góða kvöldstund með fólki sem deilir sama áhuga og þú.
Húsið opnar 19:45.
Verð: 2000kr
Félagsmenn 1000kr
Kaffi og te í boði.
Engin skráning bara mæta.
Hlökkum til að sjá ykkur.

