Ásthildur Sumarliðadóttir

Þjálfun miðilshæfileikans með Ásthildi helgarnámskeið

Áhugaverð námskeið í mars 2022.Þjálfun miðilshæfileikan. Síðast komust færri að en vildu svo vegna mikils áhuga var ákveðið að halda námskeiðið aftur.

Á þessu helgarnámskeiði mun Ásthildur Sumarliðadóttir kenna einfalda tækni sem þú getur notað þegar þú vinnur með þinn andlega hæfileika.Þetta námskeið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Þetta námskeið er gott fyrir þá sem hafa áhuga á að efla sinn miðilshæfileika og læra að vinna með hann á einfaldan og auðveldan hátt. Kennsluaðferðina hefur hún þróað með sjálfri sér og hefur hún reynst mörgum vel.„Ég trúi því að besta þjálfunin sé að gera æfingar sem efla þína næmni í að sjá heyra og finna“ segir Ásthildur.

Námskeiðsgjald er 20.000 kr.

Námskeiðið verður 05.-06. Mars 2022. Mæting kl 10.00-16.00 báða dagana.SRFÍ, Skipholti 50d. Skráning: srfi@srfi.is eða asasumarlida16@gmail.com

Ásthildur Sumarliðadóttir

Ásthildur Sumarliðadóttir er Reikimeistari, Opj þerapisti og hefur unnið í gegnum tíðina með transheilun, spáð í spil, verið í markvissri transþjálfun síðan 2005 og þjálfun í vökumiðlun. Hún hefur farið á mörg trans/heilunar og miðilsnámskeið í hinum virta Arthur Findlay skóla í Bretlandi.