Ragnhildur Sumarliðadóttir leiðir þróunarhóp í vor sem er ætlaður byrjendum og lengra komnum.
Áhersla verður lögð á að þróa andlega hæfileika okkar, við lærum að tengja okkur, stundum hugleiðslur, heilun, miðlun, spil, bolla, fjarheilun, bænina og verndina. Æfingin skapar svo margt, aðalatriðið er að treysta og vinna saman á jákvæðan og skemmtilegan hátt.
Ragnhildur hefur alltaf haft áhuga á andlegum málum og verið skyggn frá barnsaldri. Hún hefur verið í transþjálfun, heilun, bænahringjum, Hún hefur sótt fjölmörg námskeið á Íslandi hjá breskum og íslenskum miðlum og hefur auk þess tekið ýmis námskeið erlendis eins og t.d við Arthur Findlay College í Stansted Hall. Hún lært á allskyns spil, bolla, hlutskyggni, vökumiðlun, reiki, opj, fjarheilun
Ragnhildur hefur haldið helgarnámskeið bæði í Noregi og á Íslandi. Auk Þróunarhóps hjá félaginu heldur Ragnhildur ásamt Magnúsi manninum hennar utan um Bæna- og hugleiðsluhring Sálarrannsóknarfélags Íslands sem er á mánudögum kl 20:00 í opinni dagskrá.
Námskeiðið hefst 07.janúar 2025.
Námskeiðið stendur í 12 vikur og verður á þriðjudögum frá klukkan 17:30-19:30.
Mikilvægt að mæta tímanlega. Húsið opnar 17:15.
Verð: 54.000kr
Skráning á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.