Þróun þíns innri manns með næmni og skynjun með Agnari Árnasyni.

Ég býð ykkur í að kanna með mér alheiminn sem við þekkjum svo vel. Við munum líta á hann frá svolítið öðru sjónarhorni en venja er og öðlast þannig tækifæri til að sjá inn í nýjar víddir hans og óvænta auðlegð.

Við lifum í orkuheimi sem umlykur okkur. Á þessum námskeiðum mun ykkur (  verða kleift að sjá þetta orkusvið betur, skilja þau sannfæringamynstur sem eru ríkjandi og þá fjarorku annara sem hefur áhrif á okkur. Þetta eru námskeið í því að gera hið ómeðvitaða meðvitað og kafa ofan í dularheima ósýnilegra krafta sem búa í okkur sjálfum og umhverfis okkur.

Það er margt til utan hinna fimm skynfæra okkar og það getur haft áhrif á okkur Með auknum skilningi á þessari orku getur hún orðið hjálpartæki sem auðveldar okkur förina hvert sem henni er heitið. 

Miðvikudagar frá 20:00-22:00.

12.skipti

Hefst: Miðvikudaginn 01.október 2025

Verð 60.000kr

Skráning fer fram á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13;00-16:00.

Bóka einkatíma á netinu: https://noona.is/saloisland