Valgerður Bachmann

Spákona og miðill

Námskeið hjá Valgerði Bachmann í Sálarrannsóknarfélaginu

Alheimsorku námskeið

Drauma námskeið

Sígauna námskeið

Skyggnilýsingar

Hægt er að skrá sig á biðlista á skrifstofutíma eða á srfi@srfi.is 

Valgerður er spámiðill og vinnur með spil sér til hliðar. Valgerður hefur unnið að andlegum málefnum síðan 2009. Þar að auki er Valgerður sjálfstætt starfandi rithöfundur og grafískur hönnuður og hefur hún gefið út bækur, andleg spil og hannað fyrir ýmis fyrirtæki. Hægt er að spyrja Valgerði spurninga í einkatímum.

Valgerður hefur unnið mikið með börnum sem sjá og finna fyrir þeim sem eru farnir og þekkir það vel úr sinni æsku. Valgerður tekur einnig að sér að hreinsa í húsum hvort sem það er að koma á staðinn eða ekki. Hægt er að bóka tíma fyrrir börn og hreinsun í húsum á skrifstofutíma eða á srfi@srfi.is

 Hægt er að bóka tíma 

Valgerður hefur haldið Jóga námskeið fyrir börn með greiningar og Jóga Nidra námskeið fyrir fullorðna. Hún er einnig Reikimeistari og hefur boðið upp á einkatíma í heilun og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Að lokum er Valgerður markþjálfi og leyfir hún þeirri menntun að flæða inn í einkatímana.

Hægt er að bóka tíma hjá Valgerði undir Miðlun eða heilun 45 mín bókunarsíðu Sálarrannsóknarfélags Íslands hér.

Einnig er hægt að panta í gegnum símanúmerið hjá Sálarrannsóknafélagi Íslands: 551-8130

Skrifstofan er opin Mánudaga- fimmtudaga frá 13:00-16:00