Magnús Rúnar Magnússon

Hjálpmiðlun og heilun

Magnús hefur verið skyggn og opinn á tilfinningar annarra frá barnsaldri og er skyggni og næmni í báðum hans ættum. Hann hefur notið leiðsagnar og aðstoðar, í fræðslu og þjálfun, hér á landi og erlendis allt frá árinu 1986. En þá opnaði hann fyrirbænabók og fór að fara að beiðni fólks upp á spítala og í heimahús.

Í einkatímum miðlar hann en notast einnig við bekk og heilar með ljósi og orku að handan til hjálpar og leiðsagnar.

Magnús hefur í heimsóknum aðstoðað við erfiðleika barna með svefn og andlegar truflanir sem og reimleika í húsum. Í einkatímum miðlar hann en notast einnig við bekk og heilar með ljósi og orku að handan til hjálpar og leiðsagnar.

Skráning á biðlista á skrifstofu í síma 551-8130 eða á srfi@srfi.is

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00