Miðill

Námskeið hjá Ásthildi Sumarliða í Sálarrannsóknarfélaginu:

  • Þróun miðilshæfileikans
  • Spáðu í spilin
  • Þjálfun miðilshæfileikans
  • Transheilun

Hægt er að skrá sig á biðlista á námskeið hér https://www.srfi.is/skraning-namskeid/  eða í síma 551-8130.

Viðburðir með Ásthildi Sumarliða hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands

  • Skyggnilýsingar
  • Heilunarhugleiðsla

Ásthildur hefur alltaf verið næm og hún telur að lífið sjálft hafi á margan hátt stuðlað að þróun miðilshæfileika hennar. Lífsreynslan, tengsl við fólk, námskeið og margvíslegar upplifanir hafa fleytt henni áfram í andlegum þroska.

Ásthildur er sambands spámiðill, OPJ meðferðaraðili, reikimeistari og hún hefur verið að þjálfa sig sem transmiðil og unnið með transheilun.

Hún hefur haldið námskeiðin: Þjálfun miðilshæfileikans, Transheilunarnámsskeið og Spáð í spilin – þau gömlu góðu.

Ásthildur hefur haldið skyggnilýsingar hjá félaginu og einnig staðið fyrir heilunarhugleiðslustund til styrktar félaginu.

Markmið Ásthildar er að vinna af heiðarleika og að nýta vettvang alkærleikans fyrir sína vinnu.

Timabókanir á netinu: https://noona.is/saloisland/xi2Q2NgNjJF9GMhEx eða í síma 551-8130.

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.