Ásthildur hefur alltaf verið næm og hún telur lífið sjálft hafi á margan hátt stuðlað að þróun miðilshæfileika hennar. Lífsreynslan, tengsl við fólk, námskeið og margvíslegar upplifanir hafa fleytt henni áfram í andlegum þroska.
Ásthildur er sambands spámiðill, OPJ meðferðaraðili, reikimeistari og hún hefur verið að þjálfa sig sem transmiðil og unnið með transheilun.
Ásthildur hefur haldið námskeiðin: Þjálfun miðilshæfileikans, Transheilunarnámsskeið og Spáð í spilin – þau gömlu góðu.
Markmið Ásthildar er að vinna af heiðarleika og að nýta vettvang alkærleikans fyrir sína vinnu.
Hægt er að bóka tíma hjá Ásthildi undir ´´Miðlun 45 mín’’ á bókunarsíðu Sálarrannsóknarfélags Íslands: noona.is/saloisland.
Einnig er hægt að panta í gegnum símanúmerið hjá Sálarrannsóknafélagi Íslands: 551-8130