Þróunarhópur með Ragnhildi

Ragnhildur Sumarliðadóttir leiðir þróunarhóp í haust sem er ætlaður byrjendum og lengra komnum.

Áhersla verður lögð á að þróa andlega hæfileika okkar, við lærum að tengja okkur, stundum hugleiðslur, heilun, miðlun, spil, bolla, fjarheilun, bænina og verndina. Æfingin skapar svo margt, aðalatriðið er að treysta og vinna saman á jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Ragnhildur og maðurinn hennar Magnús sjá um hópinn,  Ragnhildur kemur til með að sjá alfarið um kennsluna en maðurinn hennar Magnús sér um hugleiðslur og slíkt.

Ragnhildur hefur alltaf haft áhuga á andlegum málum og verið skyggn frá barnsaldri. Hún hefur verið í transþjálfun, heilun, bænahringjum, lært á allskyns spil, bolla, hlutskyggni, vökumiðlun, reiki, opj, fjarheilun og haldið helgarnámskeið bæði í Noregi og á Íslandi.

Hún hefur sótt fjölmörg námskeið á Íslandi hjá breskum og íslenskum miðlum og hefur auk þess tekið ýmis námskeið í Englandi t.d við Arthur Findlay College  í Stansted Hall.

 Námskeiðið hefst 05.september 2023, Námskeiðið stendur í 12vikur og verður á þriðjudögum frá klukkan 17:30-19:30.  Mikilvægt að mæta tímanlega.
Verð: 45.000

Félagsmannaafsláttur 2000 krónur.