Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Tarot helgarnámskeið 11-12.september

11. September 2021 - 12. September 2021

26.000kr

Soffía Petersen verður með helgarnámskeið 11. og 12. september, kl. 12:00 – 17:00

Takmarkaður fjöldi þátttakenda verður á námskeiðinu, því er um að gera að skrá sig sem fyrst.

 

Soffía er kennari að mennt og hefur haft áhuga á og notað Tarotspil í hátt á þriðja áratug. Hún hefur sótt fjölda námskeiða í heilun og miðlun undanfarin ár og starfar nú hjá SRFÍ sem leiðsagnarmiðill.

Farið verður yfir sögu Tarotspilanna, uppbyggingu þeirra, táknmál og merkingu og nokkrar helstu lagnir. Rider-Waite-Smith- og Thoth spil Crowleys verða borin saman og notuð sem útgangspunktur. Þátttakendur hafa eigin spil meðferðis. Auk leiðsagnar kennara byggir námskeiðið á samvinnu þátttakenda.

 

Fyrir hvern er námskeiðið?

  • Langar þig að læra að lesa Tarotspil?
  • Ertu forvitin/nn um merkingu þeirra?
  • Áttu kannski spil niðri í skúffu sem fá aldrei að sjá dagsins ljós?
  • Viltu virkja innsæið þitt betur og læra að nýta spilin til að leiðbeina þér og öðrum?

Ef til vill er þetta námskeið þá eitthvað fyrir þig.

Námskeiðið er aðallega hugsað fyrir byrjendur, en lengra komnir geta einnig notið góðs af því. Þú þarft lítið sem ekkert að vita um spilin, aðeins að hafa áhuga á að læra hvernig hægt er að nota þau á einfaldan hátt, þér og öðrum til góðs. Allir þátttakendur fá möppu með námsgögnum og viðurkenningaskjal.

 

Verð: 26.000
Skráning: srfi@srfi.is
Staðsetning: Salur Sálarannsóknafélags Íslands, Skipholt 50d

 

Athugið, þetta námskeið verður einnig í boði í gegnum netið seinna í haust.

Details

Start:
11. September 2021
End:
12. September 2021
Cost:
26.000kr

Venue

Salur SRFÍ
Skipholt
Reykjavík, Iceland, 105 Iceland
+ Google Map
Phone
5518130
View Venue Website