Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Spáðu í spilin, helgarnámskeið með Ásthildi 18-19.sept

18. September 2021 - 19. September 2021

20.000kr

Helgarnámskeið Spáðu í spilin – þau gömlu góðu
verður haldið dagana 18-19.september kl. 10:00 – 16:00

 

Ásthildur hefur verið næm frá barnæsku og hún byrjaði að lesa í venjulegu spilin á unglingsaldri. Hún hefur verið í transmiðilsþjálfun frá 2007-2019.
Ásthildur er Opj. þerapisti, Reikimeistari og hefur farið á nokkur námskeið í Arthur Findlay College tengt miðlun, transmiðlun og transheilun.

 

Ásthildur hefur haldið ýmis námsskeið hérlendis og erlendis, tengt miðlun og heilun og verið með vökumiðlun.
Einnig hefur hún verið með tilraunakvöld í tengslum við andleg málefni, sem hafa verið byggð upp á fræðslu og æfingum.

 

Á þessu helgarnámskeiði mun ég kenna þátttakendum hvaða merkingu spilin hafa, ásamt lögnum, fræðslu og æfingum.

Kennt er að lesa í þessi gömlu góðu í 52 spila stokknum og þeir sem ná góðum tökum á þessari aðferð geta lesið í fortíðina, núverandi aðstæður og framtíðina, fyrir þann sem lagt er fyrir hverju sinni. Báðir dagarnir byrja á leiddri hugleiðslu, hún stuðlar að betri tengingu við spilin og eflir næmni. Ásthildur mun segja frá merkingu spilanna, kenna lagnir og stýra æfingum.

 

Allir nemendur á námsskeiðinu fá gögn um merkingu spilanna og hvernig þau eru lögð.

 

Tímasetningar:
18.september klukkan 10:00-16:00
og
19.september klukkan 10:00-16:00

 

Verð:
20.000kr

Details

Start:
18. September 2021
End:
19. September 2021
Cost:
20.000kr

Venue

Salur SRFÍ
Skipholt
Reykjavík, Iceland, 105 Iceland
+ Google Map
Phone
5518130
View Venue Website