Þjálfun þíns andlega hæfileika fyrir lengra komna með Ragnhildi Sumarliðadóttur

Helgina 24.-25.maí verður Ragnhildur Sumarliðadóttir með helgarnámskeiðið Þjálfun þíns andlega hæfileika fyrir lengra komna.

Áhersla verður lögð á að þjálfa andlega hæfileika okkar, við lærum að tengja okkur, stundum hugleiðslur, heilun, miðlun, spil, bolla, fjarheilun, bænina og verndina. Æfingin skapar svo margt, aðalatriðið er að treysta og vinna saman á jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Ragnhildur hefur alltaf haft áhuga á andlegum málum og verið skyggn frá barnsaldri. Hún hefur verið í transþjálfun, heilun, bænahringjum, lært á allskyns spil, bolla, hlutskyggni, vökumiðlun, reiki, opj, fjarheilun og haldið helgarnámskeið bæði í Noregi og á Íslandi.

Hún er með þróunarhóp hjá okkur í Sálarrannsóknarfélagi Íslands https://www.srfi.is/throunarhopur-med-ragnhildi/ og heldur einnig utan um bæna- og hugleiðsluhringinn okkar á mánudögum sem er opin fyrir öllum.

Ragnhildur hefur sótt fjölmörg námskeið á Íslandi hjá breskum og íslenskum miðlum og hefur auk þess tekið ýmis námskeið í Englandi t.d við Arthur Findlay College í Stansted Hall.

Námskeiðið verður helgina 24.-25.maí frá 10:00-16:00 báða daganna.

Tekið verður hádegishlé.

Verð 30.000kr

Skráning fer fram hér á síðunni https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130

Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga frá 13:00-16:00.

Bóka einkatíma á netinu https://noona.is/saloisland

Við erum í Skipholti 50d 105 Reykjavík.